Ríkissaksóknari úrskurðar að rannsókn á slysasleppingum Arctic Fish skuli halda áfram

Frétta af frá RÚVÁsta Hlín Magnúsdóttir 18. apríl 2024 kl. 15:33 GMT, uppfært kl. 16:50

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hætti rannsókn á slysasleppingum eldislax úr kví Arctic Fish í lok síðasta árs. Það var kært og ríkissaksóknari hefur nú úrskurðað að rannsókn skuli halda áfram.

Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að að hætta rannsókn á slysasleppingum eldislax úr kví Arctic Fish í Patreksfirði í ágúst í fyrra.

Rannsókn hófst eftir kæru Matvælastofnunar 13. september. Framkvæmdastjóra Arctic Fish var þá gefin réttarstaða sakbornings. Rannsókninni var hætt 19. desember. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, sagði þá ekki grundvöll til að halda henni áfram. Gögn málsins bæru ekki með sér að umbúnaði við kvína hafi verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis Arctic Fish.

Hætta rann­sókn vegna slysa­slepp­ing­ar eld­is­lax

Ákvörðun lögreglustjórans um að fella niður rannsóknina var kærð í janúar og voru kærendur þrjátíu, þar á meðal Matvælastofnun og veiðifélög. Nú hefur ríkissaksóknari fellt ákvörðunina úr gildi og þar með gert lögreglustjóra að halda rannsókn áfram.

UmhverfismálMAST kærir ákvörð­un lög­reglu­stjór­ans á Vest­fjörð­um til rík­is­sak­sókn­ara

Í úrskurði ríkissaksóknara segir að það sé mat embættisins að umbúnaði hafi verið áfátt og ekki hafi verið farið eftir verklagsreglum eða ákvæðum reglugerðar og laga sem um starfsemina gildi. Ekkert liggi fyrir um að kærði eða aðrir sem refsiábyrgð beri hafi aðhafst nokkuð til að tryggja að unnið væri í samræmi við reglur. Því sé ekki fallist á að rétt hafi verið að hætta rannsókn.

Helgi Jensson, Lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir ákvörðun ríkissaksóknara ekki koma á óvart. Þetta séu hefðbundin vinnubrögð þegar svona ákvörðun sé kærð. Nú verði rannsókn tekin upp að nýju, málið rannsakað betur og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvort kæra verði gefin út eða málið fellt niður.

Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, er einn kærenda. Hann er ánægður með niðurstöðu ríkissaksóknara.

„Hún í raun sýnir bara, eins og við bentum á, að lögreglustjórinn á Vestfjörðum túlkaði ekki rétt refsiákvæðin í lögum um fiskeldi. Það eru svona nokkrir áhugaverðir punktar sem standa kannski mest upp úr og sérstaklega það að ríkissaksóknari í rauninni tekur kærur allra kærenda, sem eru um þrjátíu talsins, til efnislegrar skoðunar einfaldlega á þeim grunni að allur almenningur hafi hagsmuni af því að villtum ferskvatnsstofnum sé ekki spillt.“