Ætla má að heimsframleiðsla á laxi í landeldsstöðvum geti verið orðin um 50 þúsund tonn árið 2022. Heildarframleiðsla á laxi í heiminum á því ári er hins vegar áætluð um þrjár milljónir tonna. Hlutfall landeldisframleiðslu á laxi gæti því orðið um 1,5 prósent. Helstu áform um uppbyggingu landeldsstöðva eru helst næst fjölmennustu markaðssvæðunum til að mynda í Bandaríkjunum.
Þetta er niðurstaða Pareto fjárfestingarbankans og byggist á skoðun á þeim landeldisstöðvum sem kunnugt er um og geta verið komnar í framleiðslu árið 2022.
Óraunhæft tal
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að oft er því haldið fram í opinberri umræðu að einfalt sé að hætta allri framleiðslu á laxi í sjókvíum og flytja framleiðsluna upp á land. Marg oft hefur verið bent á hversu óraunhæft það tal er allt saman, en umræðan heldur samt áfram.
Framleiðsla landeldisstöðvanna mun á árinu einkanlega koma frá Bandaríkjunum, Noregi, Kína, Póllandi, Danmörku og Japan. Vitað er að ýmis landeldisverkefni eru á teikniborðinu, en bankinn bendir á að jafnvel þó áformin gangi eftir séu trauðla líkur á að þau verði orðin að veruleika á árinu 2022, nema þá að einhverjum hluta.
Torsótt fjármögnun og tæknileg vandamál
Fram hefur komið að víða gangi illa að fá fjármagn til landeldisframleiðslu á laxi til að mynda í Noregi. Pareto bankinn bendir á að hvergi hafi tekist að framleiða lax í landeldisstöðvum nema með ærnum tilkostnaði. Í vegi þeirra verði ýmis vandamál sem ekki hafi verið leyst þó vitaskuld hafi miðað í rétta átt. Auk þeirra atriða sem bankinn nefnir í þessu sambandi og hér hefur verið nefnt, er vakin athygli á að áhættan í framleiðslunni á síðustu stigum hennar aukist jafnan svo um munar, vegna margháttaðra líffræðilegra vandamála. Því hefur sums staðar verið mætt með því að slátra fiskinum fyrr í framleiðsluferlinu, sem lækkar þar með væntar heildartekjur fyrirtækjanna.
Margfaldur kostnaðarmunur á landeldi og sjóeldiRegin Jacobsen, forstjóri stærsta laxeldisfyrirtækis Færeyja hefur bent á að, “það kostar okkur 700 milljónir danskra króna ( um 13 milljarðar íslenskar krónur) að rækta 30.000 rúmmetra á landi. Í sjókvíeldi kostar samsvarandi ræktun okkur 3 milljónir danskra króna, ( um 57 milljónir íslenskar krónur) . Kostnaðarmunur er í þessu dæmi því margfaldur. Hann bendir á þá þróun sem á sér stað í laxeldi sem gengur út á að lágmarka ræktunartíma í sjó með því að setja út stærri seiði til skemmri tíma.
Landeldisframleiðsla byggist fyrst og fremst upp næst fjölmennu markðassvæðunum
Þetta og ýmsilegt fleira veldur því, eins og bankinn bendir á, að helstu áformin við uppbyggingu landeldis séu á svæðum sem eru næst fjölmennustu markaðssvæðunum. Með því má draga úr flutningskostnaði til þess að vinna gegn því rekstrarlega óhagræði sem landeldisframaleiðslunni fylgir. Má í því sambandi nefna að hinar stóru bandarísku landeldisstöðvar, annars vegar á vegum Atlantis Sapphire í Miami í Flórída og Nordic Aquafarm í Main fylki verða komnar til sögunnar að einhverju leyti amk árið 2022.