Eftirfarandi frétt var á birtast á vefnum BB.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur með dómi síðastliðinn föstudag vísað frá kröfu um ógildu starfs- og rekstrarleyfa Arnarlax til laxeldis í sjó í Arnarfirði. Kærendur voru fyrirtækin Akurholt og Geiteyri, sem eru veiðiréttarhafar í Haffjarðará. Þau voru ekki talin eiga lögvarða hagsmuni þar sem fyrirtækin eru utan áhrifasvæðis fiskeldisins. Auk Arnarlax voru kærðir leyfisveitendurnir Matvælastofnun og Umhverfisstofnun. Kærendur voru dæmdir til þess að greiða allan lögmannskostnað Arnarlax og stofnananna.
– Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram að kröfur veiðiréttarhafanna miðuðu að því að fá dóm sem legði bann við að laxeldi í sjókvíum væri stundað á Íslandi. Vísaði dómurinn til þess að löggjafinn og stjórnvöld hefðu um áratugaskeið tekið með í reikninginn áhrif fiskeldis á náttúrulega laxastofna í veiðiám á Íslandi, við ákvarðanatöku um hvort og á hvern hátt og í hversu miklum mæli fiskeldi skyldi heimilað, segir Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum LEX lögmannsstofu, sem flutti málið fyrir hönd Arnarlax.
– Þessu til viðbótar kom fram í dóminum að óumdeilt væri að staðbundin umhverfisáhrif starfsemi Arnarlax næðu ekki til þess hafsvæðis þar sem Haffjarðará rynni til sjávar. Niðurstaða dómsins er því sú að veiðiréttarhafarnir hafi ekki orðið fyrir tjóni af starfsemi Arnarlax og að þeir hafi ekki sýnt fram á að starfsemin skapaði hagsmunum þeirra sérstaka hættu. Þeir hafi því ekki lögvarða hagsmuni af að fá dóm um kröfur sínar, segir Kristín Edwald.
– Arnarlax hefur frá árinu 2009 farið í gegnum flóknar leyfisveitingar sem hafa m.a. farið í gegnum hefðbundið ferli hjá Skipulagsstofnun, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun þar sem sömu eða sambærilegir hagsmunaaðilar hafa komið á framfæri sínum sjónarmiðum og látið reyna á gildi leyfisveitinganna m.a. fyrir úrskurðarnefndum. Til viðbótar því að hafa þurft að greiða sinn eigin lögmannskostnað þurfa veiðiréttarhafarnir einnig að greiða lögmannskostnað Arnarlax, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar, segir Kristín.
Veiðiréttarhafarnir hafa tvær vikur frá uppkvaðningu úrskurðarins til þess að kæra umrædda niðurstöðu til Landsréttar.
Þetta er annar dómurinn á stuttum tíma sem fjallar um ógildingu rekstrarleyfis. Þann 12. desember 2018 sýknaði Héraðsdómur Reykjaness Matvælastofnun og fyrirtækið Laxar fiskeldi ehf af kröfu N2 málsóknarfélags. Í því máli var kærandi talinn eiga aðild að málinu og krafan tekin til efnislegrar meðferðar. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfunni í öllum atriðum, meðal annars þeim að eldið myndi valda verulegum og óafturkræfum skaða á öllum villtum laxastofnum í öllum ám Austfjarða, og sýknaði hina ákærðu í málinu.