Vefur Fréttablaðsins greinir frá því að siðanefnd Sambands Íslenskra auglýsingastofa hafi komist að þeirri niðurstöðu að texti á áróðursskilti Icelandic Wildlife Fund sem Isavia lét fjarlægja í Leifsstöð hafi brotið á siðareglum SIA.
Um er að ræða brot á 8. grein í siðareglunum, Staðfestingar: „Þegar notaðar eru í auglýsingum lýsingar, fullyrðingar eða teikningar sem eru sannanlegar staðreyndir, ætti að vera hægt að ganga úr skugga um hvort þær séu réttar. Þannig staðfestingar eiga að vera aðgengilegar þannig að hægt sé að leggja fram sannanir tafarlaust samkvæmt beiðni hjá þeim sjálfseftirlitssamtökum sem bera ábyrgð á framkvæmd siðareglnanna.“
Í frétt á frettabladid.is segir m.a:
„Siðanefnd Sambands Íslenskra auglýsingastofa (SIA) telur ósannað að Ísland sé síðasta vígi Atlantshafslaxins og að aukning laxeldis í opnum sjókvíum leiði til útrýmingar hinna einstöku villtu laxatofna Íslands.
Icelandic Wildlife Fund leitaði til Siðanefndar vegna skiltis sem hangið hafði uppi í Leifsstöð í 10 daga áður þegar ISAVIA lét fjarlægja það vegna meintra brota á vinnureglum fyrirtækisins og siðareglum SIA. Í kjölfarið hóf siðanefndin nokkuð ítarlega athugun á sannleiksgildi fullyrðinga á skiltinu og krafðist það töluverðrar legu yfir vísindum um villta laxastofna og áhrif opins sjókvíaeldis á laxastofna við landið.
Sjá einnig: Isavia lét fjarlægja auglýsingu gegn sjókvíaeldi
Áhrifin ekki sönnuð
Niðurstaða nefndarinnar er að auglýsingin brýtur ekki 12. gr. siðareglnanna sem rök ISAVIA byggðu á, „enda hallmælir auglýsingin ekki neinum einstaklingi eða hópi einstaklinga, fyrirtæki, samtökum, iðnaðar- eða verslunarstarfsemi, starfsgrein eða vöru, með það fyrir augum að kalla fram opinberlega fyrirlitningu eða hæðni, þó auglýsingin feli í sér fullyrðingar sem kunni að vera umdeildar,“ eins og segir í úrskurði nefndarinnar.
Hins vegar séu fullyrðingar á skiltinu um síðasta vígi Atlantshafslaxins og áhrif laxeldis í opnum sjókvíum á laxastofna ekki sannaðar og því um að ræða brot gegn 8. gr. siðareglnanna.“