Grillaður lax með sítrónu, kirsuberjatómötum og hvítlauk

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir og hefur lengi bloggað um mat. „Það var aldrei planið að gerast matarbloggari en fljótlega eftir að ég opnaði bloggið mitt þá fór ég að birta myndir af mat sem fengu góðar undirtektir hjá fjölskyldu og vinum. Ég ákvað þess vegna að gera meira af því og birta uppskriftir með í leiðinni, svo fór boltinn að rúlla og bloggið varð að matarbloggi,“ segir Eva Laufey en uppskriftin og myndirnar má finna á evalaufeykjaran.is þar sem endalaust má grúska í girnilegum uppskriftum frá snilldar matgæðingnum Evu Laufey.

700 g lax, beinhreinsaður

1 msk ólífuolía

salt og pipar

1 hvítlauksrif

10 kirsuberjatómatar

sítróna

1 ½ dl fetaostur

1 msk graslaukur, smátt saxaður

Aðferð:

 

Skerið laxinn í jafn stóra bita og raðið honum í álbakka eða á álpappír, dreifið olíu yfir laxinn og kryddið með salti og pipar. Rífið niður eitt hvítlauksrif, skerið niður tómata og graslauk og dreifið yfir laxinn. Skerið sítrónu í sneiðar og leggið eina sneið yfir hvern bita ásamt því að mylja fetaost yfir í lokin. Grillið í 5 – 7 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.

 

Grillaður aspas

Ferskur aspas

Ólífuolía

Sítrónusafi

Salt og pipar

Smjör

Aðferð:

 

Snyrtið aspasinn vel og skerið trénaða hlutann af, það er gott ráð að beygja aspasinn og sjá hvar hann brotnar, það er semsagt trénaði hlutinn sem við viljum losna við. Sáldrið ólífuolíu yfir aspasinn ásamt sítrónusafa, kryddið til með salti og pipar. Grillið aspasinn í örfáar mínútur og um leið og hann er tilbúinn þá er hann tekinn af grillinu og blandaður saman við smá smjörklípu. Það er einnig æðislegt að rífa niður ferskann parmesan og bera fram með grilluðum aspas.

 

Létt og góð grillsósa

2 dl majónes

180 g sýrður rjómi

1 hvítlauksrif

safi úr hálfri sítrónu

1 tsk hunang

1 msk smátt saxaður graslaukur

¼ tsk sítrónupipar

salt og pipar

Aðferð: Blandið öllum hráefnum saman í skál eða notið matvinnsluvél til þess að fá enn fínni útgáfu að sósunni. Það er afar gott að kæla sósuna aðeins áður en hún er borin fram.